Ungi maðurinn sem lést í bifhjólaslysi á Heiðmerkurvegi í síðustu viku hét Hrafn Breiðfjörð Ellertsson. Hann var fæddur árið 2004 og var búsettur á Álftanesi.
Útför hans fer fram í Víðistaðakirkju mánudaginn 18. mars kl 15:00.
Í tilkynningu frá lögreglu í kjölfar slyssins kom fram að hann hafi ekið bifhjóli vestur Heiðmerkurveg, en virst hafa misst þar stjórn á því og hafnaði hjólið utan vegar.
Tilkynning um slysið barst klukkan 18.19 fimmtudaginn 7. mars og var hann fluttur á Landspítalann. Hann var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna þangað.