Næsti forseti Íslands verður Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ef marka má skrif Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss.
„Nokkur orð um komandi kosningar til forseta,“ svona hefst stutt færsla á facebook-síðu Elliða þar sem hann vísar í grein á heimasíðu sinni elliði.is.
Í greininni segir Elliði að Katrín Jakobsdóttir hafi verið með eyrað við jörðina.
„Hlustað, metið og pælt í því hvað hún eigi að gera varðandi forsetaframboð.“
Þar fer hann jafnframt yfir vísbendingar sem hann segir staðfesta grun sinn á yfirvofandi framboði Katrínar.