Eldgos er hafið á Reykjanesskaga. Gosið braust út á Sundhnúkagígaröðinni á milli Hagafells og Stóra-Skógfells, fremur nær Stóra-Skógfelli, á svipuðum stað og gosið sem varð 8. febrúar.
Á vefmyndavél mbl.is má sjá að gosið hófst klukkan 20.23. Greint var frá gosinu hér mínútu síðar.