Halla boðar til blaðamannafundar

Halla Tómasdóttir.
Halla Tómasdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Halla Tómasdóttir, sem bauð sig fram til for­seta í kosn­ing­un­um árið 2016, hefur boðað til blaðamannafundar kl. 12 á morgun í Grósku.

Þetta kemur fram í tilkynningu og segir þar að á dagskrá fundarins sé ávarp og stutt samtal um embætti forseta Íslands.

Halla sagði í samtali við mbl.is í lok febrúar að hún íhugaði alvarlega forsetaframboð. 

Hún er nú for­stjóri B team og hef­ur aðset­ur í New York. 



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert