Öðruvísi hætta stafar af því að hraun fari í sjó heldur en þurft hefur að eiga við í síðustu eldgosum.
„Þar getur staðbundið myndast saltsýra og einnig gjóska og aska mögulega. Það er verið að fara yfir þau viðbrögð með almannavörnum. Við þurfum bara að bíða og sjá hver framvindan verður í kvöld,“ segir Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Eins og mbl.is greindi frá upp úr miðnætti þá gæti hraun að óbreyttu runnið til sjávar og þá stefnt bænum Hrauni í hættu. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að reyna að verja bæinn með varnargörðum.
Einar segist ekki þora að fullyrða hvort að flugsamgöngum stafi hætta af því ef hraunið endi í sjó. Líklega verði áhrifin staðbundin, og þá helst á viðbragðsaðila á svæðinu.
„Það getur myndast hætta á að það lendi gjóska þarna staðbundið innan þriggja kílómetra. Svo sjáum við hvað gerist í nótt, hvort að þetta færist meira í suður eða það sé farið að draga raunverulega úr þessu.“