Hraun rennur stríðum straumi úr gossprungunni sem opnaðist á níunda tímanum í kvöld.
Á myndskeiði sem tekið var um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar má sjá tilkomumiklar hrauntungur í myrkrinu.
Hér fyrir neðan má líta myndskeiðið sem var tekið fyrir skömmu.