Eldgosið á milli Hagafells og Stóra-Skógfells hefur nú staðið yfir í tæpar tólf klukkustundir.
Gosið hófst klukkan 20:23 í gærkvöldi og var gossprungan um 3 kílómetrar að lengd. Dregið hefur úr krafti gossins en áfram er þó töluvert hraunrennsli.
Á myndskeiðinu hér að ofan má sjá þróun eldgossins frá upphafi þess til klukkan 7:30 í morgun.
Á myndskeiðinu má meðal annars sjá vinnuvélar keppast við að loka götum á hraunvarnargörðunum.