Óvissustig vegna snjóflóðahættu

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum.
Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum. Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna sjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Appelsínugul viðvörun tekur í gildi á Vestfjörðum á miðnætti. 

Spáð er norðaustan 15-23 m/s og snjókomu í dag en bætir í vind í nótt. Spár gera ráð fyrir langvarandi hríð á svæðinu fram á þriðjudag með tilheyrandi uppsöfnun á snjó.

Í Facebook-færslu Veðurstofunnar segir að búast megi við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum og að vegir undir bröttum fjallshlíðum lokist vegna snjóflóða.

„Ekki er talin hætta í byggð að svo stöddu en aðstæður geta breyst þegar líður á veðrið. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám,“ segir í tilkynningunni. 

Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist vel með aðstæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert