Yrði 20 klukkustundir að ná yfir veginn

Hraun nálgast Suðurstrandarveg.
Hraun nálgast Suðurstrandarveg. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

Framrás hraunjaðarsins hefur verið um 12 metrar á klukkustundEf hraðinn helst óbreyttur mun hraun ná Suðurstrandarvegi eftir um 20 klukkustundir. Þá er talið ólíklegt að hraun muni ná til sjávar.

Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofu Íslands.

„Hraunjaðarinn í suðri er í innan við 250 m fjarlægð frá Suðurstrandarvegi. Nú síðdegis hefur framrás jaðarsins verið um 12 m/klst., sem er talsvert minni hraði en mældist fyrr í dag. Ef hraðinn helst óbreyttur mun hraun ná Suðurstrandarvegi eftir um 20 klukkustundir. Hraunið þyrfti svo að ferðast um 350 m til viðbótar til að ná alla leið til sjávar,“ segir í tilkynningunni.

Kortið sýnir áhrifasvæði ef til þess kæmi að hraun næði …
Kortið sýnir áhrifasvæði ef til þess kæmi að hraun næði til sjávar. Kort/Veðurstofa Íslands

Ólíklegt að hraun nái til sjávar

Ef hraun næði til sjávar myndu skapast lífshættulegar aðstæður í um 500 m radíus frá þeim stað þar sem það kæmist í snertingu við sjó.

„Ef hraun næði til sjávar gæti það valdið staðbundinni hættu vegna snöggrar kælingar á hrauni. Í fyrstu væri hætta vegna gjósku og gasmyndunar, fyrst og fremst saltsýra (HCI). Í um 500 m radíus frá þeim stað þar sem hraun kæmist í snertingu við sjó, væru aðstæður lífshættulegar. Eftir því sem fjær dregur minnkar hættan og er hverfandi í meira en 3 km fjarlægð,“ segir í tilkynningunni.

Hins vegar er talið ólíklegt að hraun nái til sjávar.

„Ef horft er til þróunar í virkni gossins í dag, er það talið ólíklegt að hraun nái til sjávar. Miðað við hraðan á framrás hraunjaðarsins nú síðdegis (12 m/klst.), tæki það um tvo daga. Á meðan að eldgos heldur áfram er engu að síður mikilvægt að vera undirbúin fyrir þessa sviðsmynd þar sem þær aðstæður sem þá gætu myndast eru lífshættulegar þeim sem eru innan áhrifasvæðisins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert