Málstofa umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um framtíð rammaáætlunar fer fram í Lestrarsalnum í Þjóðmenningarhúsinu í dag.
Málstofan, sem hófst klukkan 9, markar upphaf vinnu starfshóps, sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að endurskoða verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun).
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan:
Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnarinnar er kveðið á um endurskoðun laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, til að tryggja megi ábyrga og skynsamlega nýtingu og vernd landsvæða á Íslandi.
Dagskrá:
Umhverfis, orku-, og loftslagsráðherra - Guðlaugur Þór Þórðarson, flytur opnunarávarp.
Lögbundna stjórntækið rammaáætlun og þróun þess: tækifæri og áskoranir - Jón Geir Pétursson, formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar.
Sex sjónarmið gegn rammaáætlun - Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku.
Rammaáætlun í náttúruvernd - Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.
Samband Íslenskra sveitarfélaga verður með ávarp.
Kaffihlé
Rammaáætlun, er komið að leiðarlokum ? - Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við HÍ.
Góður rammi? - Ásdís Hlökk Theódórsdóttir, aðjúnkt við HÍ og frv. forstjóri Skipulagsstofnunar.
Hvers vegna rammaáætlun? - Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, frv. formaður 3. áfanga rammaáætlunar.
Rammaáætlun – barn síns tíma? - Daði Már Kristófersson, prófessor við HÍ.