Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, og Felix Bergsson, eiginmaður hans, munu í hádeginu í dag funda með þeim hópi fólks sem hvatt hefur Baldur til að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands.
Meðal annars hefur hann verið hvattur áfram í facebookhópnum: Baldur og Felix - alla leið. Meðlimir hópsins telja nú rúmlega 18 þúsund manns.
Baldur mun á fundinum, sem fer fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði og hefst klukkan 12, opinbera ákvörðun sína.
Beint streymi frá fundinum: