Dregur framboð sitt til baka og lýsir yfir stuðningi við Baldur

Í tilkynningunni segir að ein ástæðan sé að hann hafi …
Í tilkynningunni segir að ein ástæðan sé að hann hafi aðeins fengið rétt rúmlega 10% af þeim undirskriftum sem þarf til þess að framboðið geti talist gilt. Ljósmynd/Aðsend

Tómas Logi Hallgrímsson hefur ákveðið að draga til baka framboð sitt til forseta.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér rétt í þessu.

Hann lýsir yfir stuðningi sínum við Bald­ur Þór­halls­son, pró­fess­or í stjórn­mála­fræði við Há­skóla Íslands.

Segir ekki miklar líkur á góðu gengi

Í tilkynningunni segir að ein ástæðan sé að hann hafi aðeins fengið rétt rúmlega 10% af þeim undirskriftum sem þarf til þess að framboðið geti talist gilt.

„Miðað við þennan fjölda verð ég að horfast í augu við þá staðreynd að það séu ekki miklar líkur á að góðu gengi í kosningunum þó svo að lágmarksfjöldi meðmæla myndi nást.“

Lýsir yfir stuðningi við Baldur og Felix

Þá segir í tilkynningunni: „Önnur ástæðan er sú að í hádeginu í dag hlustaði ég á ræðu Baldurs Þórhallssonar og hugsaði með mér að ég yrði enn stoltari af því að vera íslendingur en ég er í dag með þennan mann sem forseta.

Með þeim orðum lýsi ég hér með yfir stuðningi mínum við framboð Baldurs og Felix.“

Hann segir það hafa verið frábært að fá allar kveðjurnar, flottu skilaboðin og alla hvatninguna til að láta þennan yfir 10 ára gamla draum sinn rætast.

„Ég stíg niður af þessu sviði með reisn og ætla að snúa mér að mínu venjulega lífi aftur náminu og þeim verkefnum sem þar bíða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert