Geir hættir sem bæjarstjóri í Hveragerði

Geir Sveinsson.
Geir Sveinsson. mbl.is/Sigurður Bogi

Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar og Geir Sveinsson bæjarstjóri hafa komið sér saman um tillögu að starfslokasamningi Geirs.

Tillagan verður lögð fyrir fund bæjarstjórnar kl. 8 á föstudaginn næstkomandi, að því er segir á vef Hveragerðisbæjar.

„Starfsfólk á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar var upplýst í morgun um að tillagan verði lögð fram. Ekki verða veittar frekari upplýsingar fyrr en að bæjarstjórnarfundi loknum,” segir í tilkynningunni.

Geir tók við starfi bæjarstjóra árið 2022. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert