Brugðið en starfsmaðurinn á batavegi

Starfsmaðurinn var að vinna utandyra í nágrenni lónsins á gröfu.
Starfsmaðurinn var að vinna utandyra í nágrenni lónsins á gröfu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Starfsmaður Bláa Lónsins sem þurfti að leita á bráðamóttöku í gær vegna gaseitrunar er nú á batavegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa Lóninu. 

Starfsmaðurinn var að vinna utandyra í nágrenni lónsins á gröfu. Hann þurfti að leita læknisaðstoðar vegna öndunarfæraeinkenna og eru veikindin rakin til gasmengunar. Að
lokinni skoðun fékk hann að fara heim og er hann nú á batavegi.

Svo virðist sem gasmengun hafi slegið niður á svæðinu sem unnið var á. Bláa lónið hefur staðið lokað frá því að síðasta gos hófst og því voru engir gestir á svæðinu.

Enginn gasmælir á svæðinu

Í tilkynningu segir að öryggisverðir lónsins beri gasmæla og að fylgst sé með loftgæðum í kringum lónið. Þá eru staðbundnir gasmælar á nokkrum stöðum, bæði innandyra og utandyra.

Enginn slíkur mælir var þó á því svæði sem viðkomandi var við störf á í gær.

Lögreglan og Vinnueftirlitið eru upplýst um málið og þegar hefur verið óskað eftir samstarfi við Veðurstofu Íslands um frekari uppsetningu mælabúnaðar á athafnasvæði Bláa lónsins í Svartsengi til að geta fylgst nánar með loftgæðum, að því er segir í tilkynningu.

Sérfræðingar frá verkfræðistofunni Eflu eru sagðir leiða þá vinnu.

Brugðið vegna atviksins

„Okkur er auðvitað brugðið vegna þessa atviks og við tökum það mjög alvarlega. Við erum í góðu sambandi við starfsmanninn sem um ræðir og við erum mjög þakklát fyrir að þetta fór ekki verr. Sömuleiðis viljum þakka þeim starfsmönnum okkar sem brugðust hratt og vel við,“ er haft eftir Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert