Geir Sveinsson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, segir ummæli bæjarfulltrúa minnihlutans í bænum koma lítið á óvart og vera í takt við „þá kjallarapólitík” sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi stundað á kjörtímabilinu. Hann segir það létti að komast út „því eitraða umhverfi” sem minnihlutinn hafi skapað.
„Ummæli bæjarfulltrúa minnihlutans í Hveragerði í fjölmiðlum í gær koma lítið á óvart enda algjörlega í takt við þá kjallarapólitík sem minnihluti D lista hefur stundað á þessu kjörtímabili; að sparka í starfsfólk bæjarins, afvegaleiða alla umræðu, halda ósannindum fram gagnvart bæjarbúum, brjóta trúnað, axla ekki ábyrgð á sínum fyrri kostnaðarsömu mistökum, vinna gegn hagsmunum bæjarbúa og hafa málefnalega nákvæmlega ekkert fram að færa annað en leiðindi,” segir Geir í tilkynningu í tilefni af ummælum bæjarfulltrúa minnihlutans.
Geir minnist á bréf sem kollegi hans sendi honum í kjölfar ummælanna en þar kemur fram:
„Ég sendi þér þessar línur þar sem ég hef hugsað mikið til þín í dag. Það er með hreinum ólíkindum að lesa ákveðin ummæli í fjölmiðlum eftir starfslok þín. Slík ummæli gefa mér sterka vísbendingu um eitrað umhverfi - og slíkt umhverfi er ekki eftirsóknarvert, og þaðan af síður nærandi fyrir okkur!” segir í bréfinu.
Geir segir það greinilega taka á eftir 16 ár við völd að vera ekki lengur við stjórn.
„…eina sem þau geta og kunna er að „bullíast” í fólki með von um að það komi þeim aftur til valda, næst þegar verður kosið. En megi ég ráðleggja bæjarbúum Hveragerðis eitthvað, þá er það að eyða ekki atkvæði sínu á D-listann með þetta fólk um borð, það er einfaldlega ekki þess virði,” segir bæjarstjórinn fráfaraandi og minnist jafnframt á áhyggjur bæjarfulltrúa minnihlutans af kostnaði við starfslok hans, sem séu fullkomlega eðlileg.
„Sama er ekki hægt að segja um starfslok forvera míns í stóli bæjarstjóra Hveragerðis og hefði bæjarfulltrúanum verið nær að hafa áhyggjur af starfslokum hans 2022 en þau starfslok kostuðu bæinn margfalt meira en mín starfslok munu kosta Hveragerðisbæ, starfslok sem bæjarfulltrúinn sjálfur gerði samning um og samþykkti í bæjarstjórn á sínum tíma,” greinir Geir frá.
Hann segir mörg aðkallandi verkefni hafa beðið sín og nýs meirihluta þegar hann tók við embættinu og bætir við að aldrei í sögu bæjarins hafi jafnmikið verið gert á jafn skömmum tíma.
Sem dæmi nefnir hann:
„Hveragerði er yndislegur bær með mikla möguleika og það hafa verið forréttindi að vinna þar með frábæru starfsfólki bæjarins og án þeirra hefði okkur ekki tekist að koma jafn miklu í verk og raun ber vitni,” heldur Geir áfram.
„Ég hefði að sjálfsögðu kosið að klára alla þá vinnu sem hafin var en ég og fulltrúar meirihlutans höfðum ólíka sýn á mitt hlutverk sem bæjarstjóra sem ráðnum framkvæmdastjóra bæjarfélagsins. Þetta skref var því það besta í stöðunni og í raun léttir að komast út úr því eitraða umhverfi sem minnihlutanum hefur tekist að skapa.
Ég óska meirihlutanum og starfsfólki bæjarins áfram alls hins besta og velfarnaðar í komandi verkefnum.”