Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli bræðranna Ágústs Arnars og Einars Ágústssona í máli sem tengist rekstri trúfélagsins Zuism og dæmdi þá seka af ásökunum um fjársvik og peningaþvætti. Hlaut Einar 18 mánaða dóm og Ágúst tveggja ára dóm.
Auk þess voru tug milljóna eignir félaga sem þeir tengjast gerðar upptækar og samtals þurfa þeir að greiða um 30 milljónir í sakarkostnað.
Þetta er ekki eini dómurinn sem Einar hefur hlotið, því fyrr á þessu ári hafnaði Hæstiréttur áfrýjunarleyfi í fjársvikamáli gegn honum, en Einar hafði hlotið þriggja ára dóm í Landsrétti og stendur sá dómur því.
Bræðurnir tveir voru ákærðir fyrir að látast reka trúfélag sem uppfyllti skilyrði laga um slík félög og svíkja þannig ríflega 85 milljónir króna út úr ríkinu í formi sóknargjalda. Sömuleiðis voru þeir ákærðir fyrir peningaþvætti á fjármununum.
Í málinu var sjálft trúfélagið Zuism, einkahlutafélagið EAF sem Einar er í forsvari fyrir og bandaríska skúffufélagið Threescore LLC í Delaware einnig ákært. Millifærðu bræðurnir m.a. stóran hluta fjármuna Zuism á félagið EAF sem þeir létu Zuism síðar kaupa af öðru félagi Einars.
Ákæruvaldið taldi að Ágúst Arnar hafi fjármagnað persónulega neyslu sína með sóknargjöldum sem Zuism fékk frá ríkinu. Í ákæru kom fram að bræðurnir hafi m.a. eytt milljónum króna af sóknargjöldunum í mat, áfengi og ferðalög.
Við aðalmeðferð málsins fyrir héraðsdómi gat Ágúst litlu svarað um ráðstöfun fjármunanna. Hins vegar hélt Einar bróðir hans því fram að hann væri trúaður á kennisetningar fornsnúmera og að hann sæi fyrir sér að reka trúfélagið áfram í framtíðinni, fengi það leyfi til þess.
Í dómi Landsréttar kemur fram að dómurinn tali sannað að Ágúst og Einar hafi á árunum 2017 til 2019 blekkt stjórnvöld að því er varðar starfsemi trúfélagsins. Þeir hefðu haft fulla vitneskju um það að þeir meðlimir sem komu inn í trúfélagið í árslok 2015, þ.e. þegar félögum fjölgaði úr fimm upp í tæplega 3.000, hefðu komið þangað á öðrum forsendum en lágu til grundvallar skráningu trúfélagsins og því ekki verið unnt að telja þá sem meðlimi í trúfélaginu í skilningi laga.
„Í stað þess að gera sýslumanni og Fjársýslunni grein fyrir stöðunni sem uppi var, í samræmi við þær ríku trúnaðarskyldur sem hvíldu á Á [Ágústi] sem forstöðumanni trúfélags, styrktu ákærðu og hagnýttu sér þá röngu hugmynd stjórnvalda að trúfélagið uppfyllti skilyrði skráningar, sem leiddi til þess að félagið fékk greiddar í sóknargjöld 84.727.320 krónur, sem það átti samkvæmt lögum ekki tilkall til,“ segir í dóminum.
Eru þeir fundnir sekir um að hafa nýtt hluta fjármunanna til eigin nota, en að stærstum hluta hafi þeir fært upphæðir af reikningi trúfélagsins yfir á reikning Threescore LLC. Með því hafi þeir valdið íslenska ríkinu fjártjóni.
Er því slegið föstu í dóminum að þeir hefðu staðið saman að þessum brotum og voru þeir því sakfelldir fyrir fjársvik. Jafnframt voru þeir sakfelldir fyrir peningaþvætti með að hafa ráðstafað hinum ólögmætu fjármunum.
Samþykkt var upptaka á fjármunum og eignum í eigu þriggja félaga.
Fyrst er um að ræða 1,3 milljónir á reikningum félagsins Zuism.
Í öðru lagi var um að ræða eignir félagsins EAF, en gerð voru upptæk hlutabréf í ónefndu félagi, um 564 þúsund krónur og 271.400 dalir á reikningi félagsins í London, en síðast nefnda upphæðin nemur tæplega 38 milljónum króna.
Í þriðja lagi voru eignir félagsins Threescore LLC gerðar upptækar, en um var að ræða eignir félagsins hjá bandarísku verðbréfafyrirtæki. Námu eignirnar í september 2020 samtals 75.400 dölum, eða um 11 milljónum króna.
Þá var báðum bræðrum gert að greiða um 15,5 milljónir á mann í sakarkostnað í hérað, áfrýjunarkostnað og málsvarnarlaun fyrir Landsrétti
Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum eftir að dómur Landsréttar var birtur.