Grjótkrabbabollur, geitaostur, andaregg, hvítlaukssalat, ábrystur, konfekt og reykt sauðakjöt voru meðal þeirra afurða sem buðust á matarmarkaði sem haldinn var á Akranesi í gær.
Þangað mætti matargerðarfólk víða af Vesturlandi með afurðir sínar; kynnti þær og seldi. Mættu margir á markaðinn sem var í gamla HB-húsinu þar sem nú er starfsemi Breiðar – þróunarfélags.
Meðal þeirra sem á markaðnum voru í gær var Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi og Lilja Guðrún Eyþórsdóttir kona hans. Þau eru bændur á Vestari-Reyni, skammt frá Akranesi, og mættu beint úr mjöltum á markaðinn. Gáfu þar fólki ógerilsneydda og ófitusprengda mjólk að smakka og voru viðtökur hinar bestu eins og vænta mátti.