Samúðarkveðjur hafa borist víða að til rússneska sendiráðsins á Íslandi í kjölfar hryðjuverkaárásar sem framin var í Rússlandi á föstudag. Ivan Glinkin talsmaður sendiráðsins segir ómetanlegt að finna fyrir stuðningi meðal íslensku þjóðarinnar.
Að minnsta kosti 137 voru drepnir, þar af þrjú börn, í hryðjuverkaárás á tónleikahúsið Crocus City, skammt frá rússnesku höfuðborginni Moskvu. 11 hafa verið handteknir vegna málsins.
Sendiráðið opnaði á laugardag rafræna bók ætlaða samúðarkveðjum. Glinkin segir að nú þegar hafi borist tugir bréfa en rafræna bókin er opin út daginn í dag. Einnig hafa margir sent kveðjur til rússnesku þjóðarinnar á facebook síðu sendiráðsins.
Þá var búið að leggja blóm við ræðismannsskrifstofu sendiráðsins á Túngötu 24 og fyrir framan sendiráðið sjálft í Garðastræti 33.
Kveðjurnar hafa komið frá íslenskum ríkisborgurum, rússneskum ríkisborgurum staðsettum á Íslandi og fólki annars staðar frá sem býr hér á landi segir hann. Hópur frá Serbíu og fleiri löndum kom í sendiráðið og ræddu við starfsmenn. Þau lýstu hlýjum stuðningsorðum sínum og komu með blóm og kerti segir Glinkin.
„Þetta er harmleikur og fólk hér á Íslandi vottar rússnesku þjóðinni samúð sína og styður fjölskyldur fórnarlambanna.“
Í dag verður haldið áfram að safna samúðarkveðjum og gerir Glinkin ráð fyrir því að á morgun verði farið í að svara öllum. Bækur ætlaðar samúðarkveðjum hafa áður verið notaðar en ekki í rafrænu formi. Þegar Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, lést var samúðarbók frá Íslandi send út til Moskvu og geymd í skjalasafni þar.
Hann býst við að svipað verði gert nú.