Skíðakonan talsvert slösuð

Konan var flutt í svokallaðri skel.
Konan var flutt í svokallaðri skel. Ljósmynd/Landsbjörg

Erlenda skíðakonan sem varð fyrir sjóflóðinu í Fnjóskadal í dag er talsvert slösuð en er ekki talin vera í lífshættu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

„Mikil snjóflóðahætta var á vettvangi, ásamt því að veðurskilyrði voru erfið, og var því ákveðið að þyrlan færi ekki beint á vettvang meðan unnið væri að því að tryggja öryggi björgunaraðila. Ekki var unnt að komast á vettvang á sleðum eða öðrum tækjum og þurftu björgunaraðilar að fara fótgangandi og klofa djúpan snjó á leið sinni á vettvang,“ segir í tilkynningunni. 

Konan sem slasaðist reyndist vera með talsverða áverka og er meðal annars fótbrotin. Hún var að skíða niður fjallið Þveröxl í dalnum ásamt þremur öðrum er flóðið féll. 

Konan var flutt með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Konan var flutt með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri. Ljósmynd/Landsbjörg

130 manns komu að aðgerðinni

Viðbragðsaðilar hlúðu að konunni á vettvangi og bjuggu um hana til flutnings í svokallaðri skel.

Konan var borin í skelinni niður fjallið og var komin í sjúkrabíl klukkan 18:24.

Hún var þá orðin nokkuð köld og var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

„Frekari upplýsingar um áverka hennar liggja ekki fyrir þegar þetta er skráð,“ segir í tilkynningunni. 

Alls komu um 130 viðbragðsaðilar að aðgerðinni. Þá komu 20 bílar, 24 vélsleðar, ein þyrla, þrír leitarhundar, einn snjóbíll, einn dróni og tveir sjúkrabílar að aðgerðinni. 

20 bílar komu að aðgerðinni.
20 bílar komu að aðgerðinni. Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert