Á stjórnarfundi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í kvöld tilkynnti Otti Rafn Sigmarsson að hann segði formlega af sér sem formaður félagsins.
Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í kvöld segir að Otti Rafn hefur frá því í nóvember síðastliðnu verið í leyfi frá formennsku sökum þeirra náttúruhamfara sem geisað hafa í og við Grindavík, hans heimabæ.
„Otti Rafn sér sér ekki fært að sinna formennsku af þeim krafti sem hann hafði metnað til vegna þeirra verkefna sem náttúran í raun varpaði í fang hans. Fjölskylda, atvinna og fyrirsjáanleg uppbygging verða á þessum tíma að hafa forgang.“
Samkvæmt tilkynningunni samþykkti Stjórn félagsins einróma á fundinum að varaformaður þess, Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir verði nýr formaður. Hún hefur gengt störfum formanns í fjarveru Otta Rafns.
Jón Ingi Sigvaldason mun taka við varaformennsku tímabundið fram að næsta landsþingi sem verður haldið í maí 2025 á Selfossi.