Hóteli í póstnúmeri 105 var lokað fyrr í dag af lögreglunni. Hótelið hafði ekki tilskilin leyfi.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Samkvæmt heimildum mbl.is var gestum vísað út af hótelinu og er málið komið í meðferð hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Sýslumaðurinn hefur heimildir til að taka ákvarðanir í málinu í sambandi við sektir og aðra framhaldsmeðferð. Lögreglan sér einungis um framkvæmdina.
Lögregla hafði í nógu að snúast í dag og var þó nokkuð um útköll vegna innbrota og þjófnaðar. Hún var þrisvar kölluð til vegna innbrota í miðbæ og Hlíðum. Í miðbænum var innbrot og þjófnaður í fyrirtæki tilkynnt ásamt innbroti í nýbyggingu. Í Hlíðunum var brotist inn í fyrirtæki.
Lögreglan í Kópavogi sinnti einnig útkalli vegna þjófnaðar í verslun.
Í Hafnarfirði voru nokkrir aðilar handteknir fyrir innbrot og þjófnað. Þá var lögregla einnig kölluð út vegna aðila sem var „til leiðinda“ við verslun í Garðabæ. í Grafarholti handtók lögreglan aðila vegna óláta.
Í Breiðholti var tilkynnt um erlendan aðila að brenna bækur utandyra. Þá var einnig annar aðili til leiðinda í Breiðholtinu. Þá barst lögreglunni tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í miðbæ Kópavogs.