Tveir jeppar rákust saman á Glerárgötu við Strandgötu á Akureyri á tíunda tímanum í morgun.
Varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri segist ekki hafa upplýsingar um slys á fólki.
Allt er á kafi í snjó í bænum og stendur snjómokstur yfir.
Umferð þar sem bílarnir rákust saman er stjórnað af umferðarljósum.