Huldulistamaðurinn Blanksy svipti af sér hulunni í kvöld eftir að hafa krotað skilaboð á auglýsingaskilti, eignir áhrifavalda og ýmislegt fleira undanfarna daga.
Í tilkynningu frá Öryrkabandalaginu segir Bubbi Morthens sé maðurinn á bakvið lambhúshettuna en það er eru ÖBÍ réttindasamtök sem standa á bakvið Blanksy-gjörninginn. Tilgangurinn er að vekja athygli á kjörum fatlaðs fólks á Íslandi og krefjast löngu tímabærra umbóta.
„Áhrifavaldar hafa birt myndbönd í gríð og erg undanfarna daga eftir að hafa lent í Blanksy. Gummi Kíró, Natan Berg, Hjálmar Örn Jóhannsson og Eggert Unnar urðu meðal annars fyrir barðinu á manninum. Í kjölfarið lýstu Natan og Eggert opinberlega eftir Blanksy og hétu hverjum þeim sem vissi hver hann var 100.000 krónum í fundarlaun.
Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko, var á meðal þeirra sem töldu sig vita hver Blanksy var. Hann var viss um að Jón Gnarr forsetaframbjóðandi væri huldulistamaðurinn, en það reyndist ekki rétt,“ segir ennfremur í tilkynningunni.