Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins milli Hagafells og Stóra Skógfells.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum en þar segir ennfremur:
„Farið var á neyðarstig þegar eldgosið hófst þann 16. mars sl. Þrátt fyrir að eldgosið haldi áfram þá hefur staðan nú haldist óbreytt um nokkurt skeið. Ekki hefur mælst landris á svæðinu síðustu daga.
Ýmsar áskoranir eins og gróðureldar í kringum hraunbreiðuna, gasmengun hafa verið viðvarandi síðustu daga en mengunin hefur borist í byggð á Suðurnesjum. Áfram verður fylgst með gróðureldum við eldgosið og brugðist við þegar þarf, einnig hefur verið farið í fyrirbyggjandi aðgerðir. Almenningur getur bæði fylgst með gasmengunarspá á vef Veðurstofunnar og loftgæðum á vefnum loftgaedi.is.“