Þórdís óskar eftir að málsmeðferðinni verði frestað

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur óskað eftir því að málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 (eyjar og sker) verði frestað svo unnt sé að endurskoða kröfur ríkisins með hliðsjón af betri gögnum.

Þann 2. febrúar sl. voru settar fram kröfur fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á svæði 12 sem varða eyjar og sker. Í febrúar sendi svo ráðherra óbyggðanefnd bréf þar sem óskað var eftir því að hún endurskoðaði fyrri afstöðu sína til þess að nýta ákvæði í þjóðlendulögum um að gefa þeim sem kalla til eignarréttinda á svæðinu kost á að lýsa kröfum sínum áður en fjármála- og efnahagsráðherra lýsti kröfum fyrir hönd ríkisins. Með bréfi í sama mánuði hafnaði nefndin beiðni ráðherra, að því er fram kemur í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins. 

Þurfa lengri tíma til að vinna málið

Þá kemur fram, að fyrri kröfugerð ríkisins vegna svæðisins hafi verið til nokkurrar umræðu undanfarið og nýlega hafa komið fram kortaupplýsingar og önnur gögn sem gefa tilefni til gagngerrar endurskoðunar á henni. Gert sé ráð fyrir að við endurskoðun sé unnt að draga stórlega úr fyrri kröfum ríkisins á svæðinu og jafnframt að endurskoðaðar kröfur verði í betra samræmi við meðalhóf og gögn. Til þess þarf lengri tíma til að vinna málið.

„Fjármála- og efnahagsráðherra hefur því lagt fram kröfu til óbyggðanefndar um að frekari málsmeðferð vegna svæðisins verði frestað þar til betri afmörkun þess liggur fyrir. Leiðarljós við þá vinnu verði m.a. að draga úr ágreiningi og skapa grundvöll fyrir betri sátt um málsmeðferðina,“ segir í tilkynningunni. 

Væntir þess að nefndin taki vel í þessa ósk

„Ég vænti þess að óbyggðanefnd taki vel í mína ósk enda hefur nefndin bent á að það er á forræði ráðherra að taka kröfurnar til endurskoðunar á hvaða stigi máls sem er. Þótt ríkið dragi með þessu kröfugerðina ekki formlega til baka, sem gæti kallað á lagabreytingu, þá er aðalatriðið hér að við erum að stíga öruggt skref í því að kröfurnar byggist á meðalhófi og almennilegum gögnum,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert