Kalla þurfti til lögreglu vegna atviks sem átti sér stað á mathöllinni á Hlemmi í gær. Var dreng og stúlku m.a. vísað út.
Ekki liggur fyrir hvers vegna viðkomandi var vísað út en samkvæmt upplýsingum mbl.is var drengur borinn út af fjórum lögreglumönnum.
Fjöldi viðskiptavina var á mathöllinni þegar atvikið átti sér stað.
Ekki náðist í lögregluna á höfuðborgarsvæðinu við vinnslu fréttarinnar.
Uppfært 7. apríl klukkan 13.37:
Upphaflega kom fram að kona og maður hefðu verið handtekin á mathöllinni. Það er ekki rétt. Fréttin hefur verið uppfærð í samræmi við það.