Hryðjuverkamálinu áfrýjað til Landsréttar

Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rík­is­sak­sókn­ari hef­ur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykja­vík­ur í hryðju­verka­mál­inu svo­kallaða til Lands­rétt­ar. Þetta staðfest­ir Sig­ríður Friðjóns­dótt­ir rík­is­sak­sókn­ari í svari við fyr­ir­spurn mbl.is. Áfrýjað er til sak­fell­ing­ar fyr­ir til­raun til hryðju­verka og hlut­deild í þeirri til­raun, en þeir Sindri Snær Birg­is­son og Ísi­dór Nathans­son voru sýknaðir í héraði af þeim hluta máls­ins.

Þá krefst rík­is­sak­sókn­ari einnig staðfest­ing­ar á sak­fell­ingu í þeim hluta máls­ins sem snýr að vopna­laga­broti, auk þess að fara fram á refsiþyng­ingu.

Sindri Snær var í héraði dæmd­ur í tveggja ára fang­elsi. Ísi­dór hlaut átján mánaða dóm. Voru þeir dæmd­ir fyr­ir brot gegn vopna­laga­gjöf, en sýknaðir af til­raun til hryðju­verka og hlut­deild í til­raun til hryðju­verka.

Einnig voru gerð upp­tæk ýmis tæki, vopn og ann­ar búnaður sem var í fór­um mann­anna.

Verj­end­ur mann­anna sögðu eft­ir dóms­upp­kvaðningu í héraði að dóm­ur­inn væri mik­ill létt­ir en sá sama tíma áfellsi­dóm­ur yfir vinnu­brögðum lög­reglu og ákæru­valds.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert