Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun flytja Alþingi yfirlýsingu á þingfundi sem hefst kl. 15. Í kjölfarið fara fram umræður um hana.
Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér fyrir neðan:
Bjarni, sem er formaður Sjálfstæðisflokksins, tók í gær við embætti forsætisráðherra í annað sinn en Bjarni var einnig forsætisráðherra frá janúar og fram í nóvember árið 2017.