Sex þúsund bæst við á þremur klukkustundum

Bjarni tók við lyklunum að forsætisráðuneytinu í morgun.
Bjarni tók við lyklunum að forsætisráðuneytinu í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nöfnum á undirskriftalista gegn Bjarna Benediktssyni, nýjum forsætisráðherra, fjölgar ört á island.is.

Hafa nú ríflega sextán þúsund manns skrifað undir listann sem ber yfirskriftina: Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra.

Þegar mbl.is greindi frá listanum upp úr klukkan ellefu höfðu rétt ríflega 10 þúsund manns skrifað undir. Á þremur klukkustundum hefur undirskriftunum því fjölgað um sex þúsund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert