Umdeildur ráðherrakapall var lagður á borð landsmanna í morgun er ráðherrar ríkisstjórnarflokkanna tóku við og afhentu lykla ráðuneyta.
Fimm ráðuneyti fengu „nýjan“ ráðherra í morgun, þar af einn sem ekki hefur gegnt embætti ráðherra áður.
Ráðherrakapallinn, sem fór af stað vegna fordæmalauss forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur fyrrverandi forsætisráðherra, hefur lagst misvel í landann sem og stjórnarandstöðuna.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, kveðst íhuga vantrauststillögu á ríkisstjórnina í heild sinni eða Bjarna Benediktsson, nýjan forsætisráðherra. Þá var vantrauststillaga á hendur Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra lögð fyrir Alþingi, þegar hún var matvælaráðherra.
Þá hafa á vel annan tug þúsunda lýst því yfir að þeir styðji ekki Bjarna í embætti forsætisráðherra á Ísland.is.
Lyklaafhending hófst klukkan níu í morgun í Stjórnarráðinu, sem hýsir skrifstofu forsætisráðherra, þar sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók við lyklum Katrínar.
Þetta er í annað skiptið á hálfu ári sem Bjarni tekur við nýju ráðherraembætti en hann sagði af sér í október sem fjármálaráðherra í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Í álitinu kom fram að Bjarna hefði, að mati umboðsmanns, brostið hæfi er hann samþykkti tillögu Bankasýslu ríkisins um söluna á 22,5% hlut í Íslandsbankana.
Þegar þetta er ritað hafa þegar 14 þúsund Íslendingar sett nafn sitt á undirskriftalista á Ísland.is sem ber yfirskriftina: Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra.
Fjölgar undirskriftunum ört.
Þess má geta að þetta er í annað skiptið sem Bjarni gegnir embætti forsætisráðherra Íslands en hann gegndi því embætti einnig þegar Björt Framtíð, Viðreisn og Sjálfstæðisflokkurinn mynduðu saman ríkisstjórn í kjölfar alþingiskosninganna árið 2016.
Björt framtíð sleit stjórnarsamstarfinu í september árið 2017 vegna „alvarlegs trúnaðarbrests“ eins og fram kom í tilkynningu flokksins.
Klukkan hálftíu í morgun var förinni svo heitið í fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Þar tók Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi innviðaráðherra, við lyklunum af Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Ingi er þriðji fjármálaráðherra Íslands á þessu kjörtímabili en eins og rifjað var upp hér að ofan lét Bjarni af embættinu í október og átti þá stólaskipti við Þórdísi Kolbrúnu sem gegndi áður embætti utanríkisráðherra.
Klukkan tíu var komið að lyklaskiptum í innviðaráðuneytinu. Sigurður Ingi afhenti þar Svandísi Svavarsdóttur lyklana.
Svandís lætur af embætti sjávarútvegs- og matvælaráðherra.
Eins og áður kom fram var lögð fram vantrauststillaga gegn henni vegna lögbrots er hún bannaði veiðar á langreyðum síðasta sumar.
Klukkan hálfellefu tók Þórdís Kolbrún aftur við lyklunum að utanríkisráðuneytinu. Embættinu sem henni var falið að sinna í kjölfar kosninganna árið 2021.
Skilur hún við fjármálaráðuneytið eftir hálft ár í starfi.
Klukkan ellefu var nýr ráðherra kynntur til leiks í matvælaráðuneytinu, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.
Bjarkey tók við lyklunum af samflokkskonu sinni Svandísi, sem eins og áður sagði braut lög er hún gegndi embættinu en er nú tekin við nýjum ráðherrastóli.