Landsbankinn spáir að verðbólga lækki úr 6,8% í 6,1% á milli mánaða í apríl.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá hagfræðideild Landsbankans.
Reiknuð húsaleiga, flugfargjöld til útlanda og matarkarfan hafa mest áhrif til hækkunar í spá Landsbankans.
„Apríl í fyrra var stór hækkunarmánuður og þar sem við gerum ráð fyrir töluvert minni mánaðarhækkun nú lækkar ársverðbólga töluvert. Á móti gerum við ekki ráð fyrir því að verðbólga lækki mikið næstu mánuði þar á eftir og búumst við því að hún verði 5,9% í júlí,“ segir í tilkynningunni.