200 milljónir í leikvelli í Breiðholti og Grafarvogi

Skólalóðin við Ártúnsskóla.
Skólalóðin við Ártúnsskóla. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Alls verða þrjár lóðir við leik- og grunnskóla Reykjavíkurborgar endurgerðar á árinu. Enn fremur verða þrjú leiksvæði í Breiðholti endurgerð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Verklok í október

Leikskólalóðirnar sem um ræðir eru við Suðurborg og Borg-Arnarborg en grunnskólalóðin er við Borgarskóla.

Samkvæmt Reykjavíkurborg felur endurgerð skólalóða í sér heildar endurskipulagningu lóða og endurnýjun frá grunni.

Að auki verða verulegar endurbætur á lóð leikskólans Bergs og á lóð Hlíðaskóla þar sem yfirborðsefni á körfuboltavelli verður endurnýjað.

Áætlaður kostnaður við verkið er 150 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir í maí og áætlað að þeim ljúki í október 2024.

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út þessar framkvæmdir og einnig framkvæmdir vegna endurgerðar opinna leiksvæða.

Fjarlægja perlumöl 

Þrjú leiksvæði í Breiðholti verða endurgerð, en þau eru í Krummahólum, Vesturbergi og Bakkaseli.

Endurnýja á yfirborð leiksvæða, það er fjarlægja perlumöl og setja hellur, gras og gervigras í staðinn og leiktæki verða endurnýjuð eftir þörfum. Lögð er áhersla á að gera leiksvæðin aðgengileg fyrir alla og bæta lýsingu þar sem þess er þörf.

Áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar er 50 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir í byrjun maí og áætlað að þeim ljúki í september 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert