Eldur kom upp í rafmagnshlaupahjóli í Bökkum í Breiðholti núna fyrr í kvöld. Búið er að slökkva eldinn.
Þetta segir Davíð Friðjónsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Tveir dælubílar voru sendir á vettvang og búið er að slökkva eldinn. Rafmagnshlaupahjólið var í hjólageymslu en tjónið var aðeins bundið við rafmagnshlaupahjólið, að sögn Davíðs.
Slökkviliðsmenn eru enn að störfum við að reykræsta geymsluna.