Búið er að ráða niðurlögum eldsins sem var í sinu í búgarðabyggðinni svokölluðu á milli Selfoss og Eyrarbakka. Eldurinn kviknaði út frá rafmagnskapli sem lá á milli húsa.
Þetta segir Halldór Ásgeirsson, aðalvarðstjóri Brunavarna Árnessýslu, í samtali við mbl.is.
Brunavörnum barst tilkynning um sinueldinn klukkan 14.40 og upp úr klukkan 17 var búið að slökkva eldinn.
Á bilinu 25-30 slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðinni en sinueldurinn náði yfir þrjá hektara.
„Þetta kviknar út frá rafmagnskapli sem neistar, bara algjört óviljaverk,“ segir Halldór.
Mikill reykur barst frá brunanum en að sögn Halldórs þá varð engum meint af.
„Það lagði hraustlega yfir nokkur hús þarna en það voru engar skemmdir af reyk eða lykt í húsum.“