Enginn einn hlaut yfir 50% atkvæða í kjöri til biskups. Úrslitin voru kunngjörð rétt í þessu.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir hlaut 45,97% atkvæða. Séra Guðmundur Karl Brynjarsson hlaut 28,11% atkvæða.
Verður því haldn önnur umferð þar sem kosið verður á milli þeirra tveggja.
Séra Elínborg Sturludóttir, sem einnig var í kjöri, hlaut 25,48% atkvæða, en á kjörskrá voru 2286 manns.
Alls greiddu 1.825 manns atkvæði í kosningunum sem jafngildir 79,83% kjörsókn.
Kosning hófst á fimmtudaginn í síðustu viku og stóð yfir fram á hádegi í dag. Stefnt er að því að seinni umferð kosninga hefjist fimmtudaginn 2. maí klukkan 12 og standi yfir til þriðjudagsins 7. maí kl. 12.