Að minnsta kosti einn er slasaður eftir árekstur tveggja bifreiða á Ölfusárbrúnni við Selfoss.
Brúnni hefur verið lokað tímabundið en verður hún opnuð innan skamms. Þetta segir varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við mbl.is.
Aðgerðin er yfirstandandi en slysið átti sér stað á tólfta tímanum.