Gul viðvörun tók gildi í morgun

Gul viðvörun tók gildi í morgun.
Gul viðvörun tók gildi í morgun. Kort/Veðurstofa Íslands

Gul viðvörun tók gildi klukkan 6 í morgun á Breiðafirði og Vestfjörðum vegna talsverðrar rigningar og asahláku. Einnig er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm á Snæfellsnesi.

Gul viðvörun tekur gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 9 í dag og á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi klukkan tíu.

„Ört hækkandi hitastig og því má búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns,” segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurspáin á landinu er annars þannig að það gengur í sunnan 10 til 18 metra á sekúndu með rigningu og súld, en úrkomuminna verður norðaustantil. Talsverð rigning verður á Vesturlandi seinnipartinn. Hiti verður á bilinu 5 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan og austan.

Styttir upp í nótt og fyrramálið, suðvestan og vestan 8-15 m/s verða á morgun og yfirleitt bjart, en 15-23 á norðanverðu landinu. Dregur úr vindi annað kvöld og verður hiti á bilinu 4 til 11 stig, mildast syðst.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert