Dacia Duster-bifreið virtist vera föst úti í hrauni við byrjun leiðigarðsins sem fer vestur út fyrir Bláa lónið í dag.
Hafþór Skúlason tók þessa mynd af bifreiðinni klukkan 17.25. Um klukkan 19 var bifreiðin enn kyrrstæð á sama stað, að því er Hafþór segir í samtali við mbl.is.
Björgunarsveitarfólk bjargaði þremur örmagna erlendum göngumönnum á gönguleiðinni að Litla-Hrút rétt vestan við Kistufell í gærkvöldi.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að ekkert hafi komið á sitt borð um ferðamenn eða aðra sem gætu hafa fest bílinn sinn á þessu svæði á svona óheppilegum stað.