Afgreiðslu virkjunarleyfis haldið áfram að óbreyttu

Flúðir og grónir hólmar færu á kaf undir inntakslón Hvammsvirkjunar.
Flúðir og grónir hólmar færu á kaf undir inntakslón Hvammsvirkjunar. mbl.is/Golli

Orkustofnun mun að óbreyttu halda afgreiðslu virkjunarleyfis Hvammsvirkjunar áfram þrátt fyrir kæru ellefu landeigenda. Vinna við útgáfu virkjunarleyfis er hafin og stefnt er að því að auglýsa fyrir umsóknir á næstunni.

Þetta segir Sara Lind Guðbergsdóttir, settur orkumálastjóri, í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is.

„Að meginreglu frestar kæra ekki réttaráhrifum stjórnvaldsákvarðana. Að óbreyttu mun Orkustofnun halda afgreiðslu virkjunarleyfisins áfram,“ segir í svarinu.

Vinna við útgáfu virkjunarleyfis hafin

Sara Lind Guðbergsdóttir er settur orkumálastjóri.
Sara Lind Guðbergsdóttir er settur orkumálastjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögmaður landeigendanna sagði í samtali við mbl.is að hann vonaðist til þess að Orkustofnun myndi ekki veita virkjunarleyfi til Landsvirkjunar á meðan kæran væri til meðferðar hjá dómstólum.

Þann 10. apríl veitti Umhverfisstofnun heimild til breytinga á vatnshloti vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun.

„Í framhaldi af þeirri ákvörðun sendi Landsvirkjun erindi til Orkustofnunar með upplýsingum í samræmi við leiðbeiningar stofnunarinnar frá 16. nóvember 2023. Vinna við útgáfu virkjunarleyfis Landsvirkjunar í samræmi við fyrirliggjandi gögn er hafin og stefnt að auglýsingu umsóknar um virkjunarleyfi í Lögbirtingablaði og vefsíðu Orkustofnunar á næstunni,“ segir í svari orkumálastjóra.

Orkustofnun hefur tvo mánuði til að afgreiða 

Hún segir að lögbundinn athugasemdafrestur við virkjunarleyfi séu fjórar vikur og að þeim tíma loknum fái Landsvirkjun færi á að bregðast við framkomnum athugasemdum og umsögnum.

Að því loknu hefur Orkustofnun tvo mánuði til að afgreiða virkjunarleyfi.

Land­eig­end­urnir höfða mál gegn ís­lenska rík­inu og Lands­virkj­un og freista þess að fá felld úr gildi með dómi, leyfi sem Fiski­stofa veitti árið 2022, og heim­ild Um­hverf­is­stofn­un­ar fyr­ir Hvamms­virkj­un frá því fyrr í þess­um mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka