Agnar Már Másson
Virknin í eldgosinu við Sundhnúkagígaröðina hefur lítið breyst en svo virðist sem gígbarmurinn hafi hækkað frá því í gær.
Þetta segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Ef vefmyndavélar mbl.is eru skoðaðar í stutta stund mætti halda að eldgosinu væri lokið þar sem lítið sést í kviku sem vellur þó enn upp.
„En maður sér alveg smá slettur,“ segir Sigríður Magnea.
„Virknin í gígnum hefur alla vega ekkert verið að aukast,“ segir Sigríður og tekur fram að virkning sé ekki endilega að minnka heldur.
Þá sé skjálftavirkni á svæðinu með svipuðu móti og verið hefur undanfarna daga.