Kalla þyrfti til erlent viðbragð

Norwegian Prima.
Norwegian Prima.

Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður Faxaflóahafna, segir atvik þar sem skemmtiferðaskip var hársbreidd frá að stranda við Viðey hafa hrundið af stað ferli til að fyrirbyggja önnur eins atvik í framtíðinni.

Hann segir Faxaflóahafnir hafa tekið skref í kjölfarið til að bæta öryggi og efla starfsmenn til að bregðast hratt og örugglega við í slíkum aðstæðum. Hafi þær meðal annars farið fram á að Siglingaráð geri áhættumat á siglingum skemmtiferðaskipa við landið. Inntur eftir því hvort viðbragðsgeta íslenskra stjórnvalda sé næg til að ráða við að svo stórt skip strandi segir Gísli það sitt mat að kalla þyrfti til aðstoðar erlenda viðbragðsaðila. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert