Landskjörstjórn er búin að fara yfir meðmælalista forsetaframbjóðenda. Þrír frambjóðendur hafa fengið frest til þess að bæta við sig undirskriftum: Ástþór Magnússon, Helga Þórisdóttir og Eiríkur Ingi Jóhansson.
Frambjóðendur hafa frest til kl. 17 á morgun, sunnudag. Eins og mbl.is greindi frá í dag þarf Eiríkur Ingi Jóhansson frambjóðandi 15 meðmælendur til viðbótar úr Sunnlendingafjórðungi.
Þá vantar Ástþór Magnússon einnig meðmæli í Sunnlendingafjórðungi. Helgu Þórisdóttur vantar einnig undirskriftir bæði í Vestfirðingafjórðungi og Sunnlendingafjórðungi. Þetta má sjá á Íslandi.is.
Alls skiluðu þrettán frambjóðendur meðmælalista til landskjörstjórnar á föstudag.
Áður stóð að frambjóðendur hefðu skilað inn framboðum síðan á fimmtudag, hið rétta er að þeir gerðu það á föstudag, 26. apríl.