Stór lögregluaðgerð stendur nú yfir í Vogahverfi í Reykjavík þar sem lögreglumenn virðast eltast við lítinn fólksbíl.
Sjónarvottar segja við mbl.is að þeir hafi séð lögreglubíla, bæði merkta og ómerkta, keyra á ógnarhraða á Langholtsvegi, Sæbraut og Álfheimum.
Blaðamaður mbl.is náði myndbandi af eftirförinni. Auk þess heyrist mikið sírenuvæl víða í hverfinu.
Einum bíl lögreglunnar var jafnvel ekið á röngum vegahelmingi á Sæbraut með það að markmiði að stöðva fólksbílinn, sem skilaði samt ekki árangri, að sögn eins sem mbl.is ræddi við. Sjónarvotturinn bætir við að hann hafi séð tvo menn í fólksbílnum.
Aðgerðin er á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en sérsveitin er til aðstoðar, að sögn Helenu Rósar Sturludóttur, samskiptastjóra ríkislögreglustjóra.
Hún bætir við í samtali við mbl.is að hún geti ekki veitt frekari upplýsingar um aðgerðina.
Fréttin hefur verið uppfærð.