Hermann Nökkvi Gunnarsson
Forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr lenti fyrir skömmu á Ísafjarðarflugvelli en í kvöld mætir hann á borgarafund Morgunblaðsins.
Um er að ræða opinn umræðufund með Jóni Gnarr í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Upphaflega átti fundurinn að hefjast klukkan 19.30 en vegna veðurskilyrða seinkaði flugi Jóns örlítð. Fundurinn hefst því laust fyrir klukkan 20.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson munu ræða við Jón um framboð hans til embættis forseta Íslands og þá munu fundargestir fá að koma með spurningar úr sal.
Álitsgjafarnir Lilja Rafney Magnúsdóttir og Guðmundur M. Kristjánsson verða auk þess á staðnum til að ræða forsetakosningarnar og spá í spilin.
Þegar hafa Ísfirðingar og nærsveitungar byrjað að fjölmenna í salinn og má búast við líflegum fundi.
Upptaka af borgarafundinum verður birt í fyrramálið inn á mbl.is.