Þingsályktunartillaga um rannsókn vegna snjóflóðsins sem féll í Súðavík í janúar 1995 var samþykkt á Alþingi í dag. Aðstandendur og ástvinir þeirra sem létust hafa farið fram á óháða rannsókn á tildrögum og aðstæðum síðan slysið varð.
38 þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni og greiddi enginn gegn henni. 26 voru fjarverandi þegar atkvæði voru greidd.
Fyrir atkvæðagreiðslu vakti Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, athygli á því að þetta væri í fyrsta sinn síðan lög um rannsóknarnefndir voru sett árið 2011 að Alþingi íslendinga greiddi atkvæði um rannsóknanefnd sem fjallar ekki um eftirmála hrunsins.
Hún bætti við að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi vandað sig mjög við þessa vinnu og að nefndarmenn hafi lagt sig fram um að ná saman um tillöguna. Það hafi tekist eftir vandlega yfirlegu.
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, tók einnig til máls. Hún greindi frá því að við skoðun málsins hafi ekkert komið fram sem gaf vísbendingu um að atburðir hafi þarna átt sér stað með saknæmum þætti.
Það væri þó mikilvægt að rannsóknarnefnd yrði skipuð vegna þess að rannsókn fór ekki fram þegar atburðirnir áttu sér stað.
„Það er rétt að þessi sorglegi atburður fái loksins tilhlíðandi skoðun sem verður vonandi til þess að hægt verði að setja punkt við þennan harmþrungna viðburð í sögu samfélagsins alls,“ sagði Hildur.
Síðasta sumar sendi Katrín Jakobsdóttir, þáverandi forsætisráðherra, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd beiðni lögmanns, fyrir hönd eftirlifenda og aðstandenda þeirra sem létust í snjóflóðinu, þar sem farið var fram á að málið yrði rannsakað af hálfu yfirvalda.
Í janúar var beiðni um skipan rannsóknarnefndar um aðdraganda og viðbragð yfirvalda vegna Súðavíkursnjóflóðsins afhent forseta Alþingis en þá hafði málið verið á borði stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar síðan um sumarið.
Þingsályktunartillagan var síðan lögð fyrir Alþingi um miðjan apríl og kvaðst Þórunn þá vona að málið yrði afgreitt fyrir lok þessa mánaðar.