Fiskistofa hefur tímabundið lokað starfsstöð sinni í Borgum á Akureyri eftir að mygla fannst í húsnæðinu.
Þetta staðfestir Jón Kolbeinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri eignaumsýslusviðs Reita, í samtali við mbl.is. Um er að ræða húsnæði í eigu Reita sem er að hluta í útleigu til Fiskistofu.
Aðspurður segir Jón að óværa, eða mygla, hafi fundist við framkvæmdir í þessum hluta húsnæðisins og að unnið sé að því að leysa málið í samstarfi við Fiskistofu. Enn eigi eftir að meta umfang myglunnar.
Á heimasíðu Fiskistofu segir að lokað sé vegna óviðráðanlegra orsaka. Halla María Sveinbjörnsdóttir, mannauðs- og þjónustustjóri Fiskistofu, vísaði á Reiti þegar upplýsinga var leitað.
Háskólinn á Akureyri er meðal þeirra fyrirtækja og stofnana sem er með hluta húsnæðisins á leigu.
Eyjólfur Guðmundsson rektor segir í samtali við mbl.is að upp hafi komið vandamál í þeim hluta húsnæðisins sem Fiskistofa leigir. Engin vandamál hafi þó verið staðfest í þeim hluta húsnæðisins sem háskólinn leigir.
„Þetta er allt saman í rannsókn eins og er, þannig að við bara bíðum eftir niðurstöðu.“