Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann um fertugt í fyrradag vegna rannsóknar á innbroti og þjófnaði á fjármunum úr verðmætaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í mars.
Maðurinn var í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, eða til 7. maí, í Héraðsdómi Reykjaness.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Fram að þessu hefur enginn verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins sem kom upp fyrir rúmum fimm vikum. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvort maðurinn sem sætir nú gæsluvarðhaldi sé grunaður um að vera einn af þjófunum eða hvort hann tengist málinu með öðrum hætti.
Þjófar stálu á bilinu 20 til 30 milljónum króna úr verðmætaflutningabifreið sem var lögð í Hamraborg fyrir framan veitingastaðinn Catalinu 25. mars.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í kjölfarið eftir tveimur mönnum á dökkgráum Toyota Yaris með tveimur skráningarnúmerum sem hafði verið stolið af öðrum ökutækjum.
Vegfarandi sem átti leið um Esjumela stuttu eftir þjófnaðinn gekk fram á fjórar af þeim peningatöskum sem þjófarnir höfðu með sér á brott. Töskurnar voru allar búnar litasprengjum sem eyðileggja verðmæti ef tilraun er gerð til þess að nálgast þau.
Í gær bárust fregnir af því að grunur væru um að tilraun hefði verið gerð til að koma lituðum peningum í umferð. Hafði lögregla fengið ábendingar um litaða pening í umferð, m.a. á stöðum sem reka spilakassa.
Fréttin hefur verið uppfærð.