Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hófu eftirför eftir að ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Ók hann bílnum á allt að 200 km/klst þegar mest var.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu og segir að ökumaðurinn sýndi af sér „vítavert gáleysi með aksturslagi“.
Eftirför lögreglu fór meðal annars fram í íbúðahverfi og endaði með því að lögregla þurfti að aka utan í bifreiðina til að stöðva hana.
Ökumaðurinn var í kjölfarið handtekinn. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að hlíta ekki fyrirmælum lögreglu.
Hann var færður í fangaklefa og vistaður í þágu rannsóknar málsins.