Mari Järsk, Andri Guðmundsson og Elísa Kristinsdóttir slógu Íslandsmet í bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í Öskjuhlíð í dag er þau kláruðu 51 hring. Hafa þau verið á hlaupum síðan klukkan níu á laugardagsmorgun.
Hafa þau því hvert og eitt hlaupið 341,7 kílómetra.
Þorleifur Þorleifsson átti metið sem þríeykið sló, en hann setti metið í Þýskalandi í fyrra er hann hljóp alls 50 hringi.
Hlaupararnir ætla ekki að láta 51 hring duga og héldu þau Elísa, Mari og Andri öll af stað í 52. hring sinn.
Hringurinn er 6,7 kílómetra langur.