Rannsókn á peningaþjófnaði úr sendibifreið í Hamraborg í mars miðar vel að sögn lögreglu. Gæsluvarðhald yfir íslenskum karlmanni rennur út á morgun en lögreglan heldur spilunum þétt að sér og gefur enn ekki upp hvort farið verði fram á framlengt varðhald.
Lögreglan vill ekki tjá sig frekar um gang rannsóknarinnar, segir Heimir Ríkarðsson lögreglufulltrúi í samtali við mbl.is. Hún sé í fullum gangi og henni miði ágætlega.
Íslenskur karlmaður um fertugt var í síðustu viku handtekinn vegna gruns um innbrots og þjófnaði á fjármunum úr bifreið Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í Kópavogi.
Vikulöngu gæsluvarðhaldi yfir hinum grunaða lýkur á morgun, þriðjudaginn 6. maí. Heimir gefur ekkert upp hvort farið verði fram á framlengt gæsluvarðhald: „Það er bara verið að skoða það í dag.“
Tveir menn stálu á bilinu 20 til 30 milljónum króna úr verðmætaflutningabifreið fyrir utan veitingastaðinn Catalinu þann 25. mars. Í kjölfarið lýsti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu eftir mönnum á dökkgráum Toyota Yaris með tveimur skráningarnúmerum sem hafði verið stolið af öðrum ökutækjum.
Heimir vill ekki segja hvort bíllinn hafi verið fundinn
Þjófarnir höfðu á brott með sér um 20-30 milljónir króna sem voru í tveimur töskum í verðmætaflutningabifreiðinni. Alls tóku þeir sjö töskur úr bílnum, sem fundust á víðavangi við Esjumela og í Mosfellsbæ.
Sérstakar litasprengur voru í töskunum sem eiga að springa og eyðileggja verðmæti ef tilraun er gerð til að nálgast þau og eins og fram hefur komið sprakk litasprengja í annarri af tveimur töskum sem innihélt peninga.
Í síðustu viku var greint frá því að grunur væri um að tilraun hefði verið gerð til að koma lituðum peningum í umferð. Hafði lögregla fengið ábendingar um litaða peninga í umferð, meðal annars á stöðum sem reka spilakassa.
Hluti peninganna er kominn í leitirnar, eins og fram kom í umfjöllun mbl.is í síðustu viku.
Í mars gekk vegfarandi fram á töskur sem þjófarnir höfðu á brott með sér.